Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 05. október 2015 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Daily Mail 
Nauðgunardóm Ched Evans gæti verið snúið við
Mynd: Getty Images
Hinn 26 ára gamli Ched Evans var dæmdur sekur fyrir að nauðga konu á hóteli í Wales árið 2012 og sat inni í tvö og hálft ár fyrir vikið.

Evans var sóknarmaður Sheffield United þegar brotið átti sér stað og var hann rekinn frá félaginu. Evans hafði einnig spilað þrettán landsleiki fyrir Wales.

Evans hefur alltaf haldið sakleysi sínu fram og þegar hann byrjaði að æfa með sínu gamla félagi eftir afplánunina hófust stórfelldar undirskriftasafnanir gegn því að hann fengi samning hjá félaginu, sem hann fékk ekki eftir mikla pressu frá stuðningsmönnum og styrktaraðilum.

Nú hafa ný gögn komið fram í málinu sem hefur verið áfrýjað, gögnin eru talin fara langleiðina með að sanna sakleysi Evans.

Dómurinn hefur um þrennt að velja. Hann getur hafnað áfrýjuninni, snúið dómnum við eða krafist nýrra réttarhalda.
Athugasemdir
banner
banner
banner