Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. október 2015 16:18
Magnús Már Einarsson
Viðar heldur áfram með Leikni F.
Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði
Viðar Jónsson, þjálfari Leiknis Fáskrúðsfirði, hefur framlengt samning sinn við félagið.

Viðar stýrði Leikni upp úr 3. deildinni í fyrra og í ár fór liðið beint upp í 1. deild eftir að hafa endað í 2. sæti í 2. deildinni.

„Eftir strangt samningaferli tókst að gera nýjan samning við Viðar Jónsson um þjálfun mfl karla næstu tvö árin," segir á heimasíðu Leiknis.

„Því ber að fagna og hlökkum við til enn frekari sigra á knattspyrnuvellinum næstu árin! Áfram Leiknir!"

Viðar er 38 ára gamall en hann spilaði áður með Leikni í áraraðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner