Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. desember 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Cavani þremur mörkum frá meti Zlatan
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani, sóknarmaður Paris Saint-Germain, er aðeins þremur mörkum frá því að jafna markamet Zlatan Ibrahimovic hjá félaginu.

Zlatan gerði 156 mörk á fjórum árum hjá PSG og er Cavani búinn að gera 153 mörk á fjóru og hálfu ári.

Úrúgvæski framherjinn hefur verið funheitur á tímabilinu og er búinn að skora 23 mörk hingað til.

„Stundin mun koma og ég ætla mér alls ekki að reyna að flýta fyrir henni. Það er alltaf mikilvægast að liðið geri vel, einstaklingsárangur er aldrei í fyrsta sæti í fótbolta," sagði Cavani á fréttamannafundi UEFA fyrir meistaradeildarleik kvöldsins gegn Bayern München.

PSG trónir á toppi frönsku deildarinnar og á toppi meistaradeildarriðilsins. Þó að Frakkarnir tapi fyrir þýsku meisturunum er ljóst að þeir enda í fyrsta sæti riðilsins, enda með þremur stigum meira en Bayern og miklu betri markatölu.
Athugasemdir
banner