Hinn sautján ára Callum Mawson kúkaði ekki í sæti sitt á Leikvangi Ljóssins, lögreglan hefur staðfest þetta.
Fréttir fóru að berast af því um helgina að stuðningsmaður Sunderland, sem seinna kom í ljós að hefði verið Mawson, hefði notað sæti sitt á vellinum sem klósett, hann hafi girt niður um sig og haft hægðir. Mawson steig í kjölfarið fram og sagðist ekki hafa kúkað, hann hafi verið mjög drukkinn á vellinum.
Atvikið átti sér stað á leik Sunderland og Reading.

Nú hefur talsmaður lögreglunnar í Northumbria staðfest að Mawson hafi ekki kúkað í sæti sínu.
„Lögreglan vill koma því á framfæri að stuðningsmaðurinn sem var handtekinn á laugardag hafði ekki hægðir í sæti sínu," segir í tilkynningu frá lögreglunni. Mawson var handtekinn fyrir að vera drukkinn á íþróttaviðburði.
Sjá einnig:
Segist ekki hafa kúkað í sætið
Athugasemdir