Diego Simeone er ekki að hætta með Atletico Madrid þrátt fyrir slæmt gengi í Meistaradeildinni á tímabilinu.
Simeone hefur stýrt Atletico lengi og með frábærum árangri.
Eftir síðasta tímabil og fyrir þetta tímabil komu upp spurningamerki um hvort hann yrði mikið lengur með Atletico.
Simeone hefur stýrt Atletico lengi og með frábærum árangri.
Eftir síðasta tímabil og fyrir þetta tímabil komu upp spurningamerki um hvort hann yrði mikið lengur með Atletico.
Eftir 1-1 jafntefli í kvöld gegn Chelsea varð það ljóst að Atletico er ekki að fara áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Blaðamaður BBC spurði Simeone hvort þessi niðurstaða kæmi til með að hafa einhver áhrif á ákvarðanartöku hans þegar kemur að því að ákveða hvort hann haldi áfram eða hætti með Atletico.
„Nei, þvert á móti. Þetta er ný áskorun. Allt sem er slæmt, við ætlum að breyta því í jákvæðan hlut," sagði Simeone.
Athugasemdir