Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 05. desember 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterling gerir grín að sköllóttum liðsfélögum - „Soðið egg"
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling ákvað að skjóta á nokkra af liðsfélögum sínum sem eiga það sameiginlegt að vera sköllóttir.

Liðsfélagarnir sem um ræðir eru Fabian Delph og David Silva.

Silva hefur lengi skartað nokkuð miklu hári en hann rakaði það allt af fyrr á þessu tímabili. Delph hefur hins vegar lengi saknað hársins og verið án þess frá því hann hóf feril sinn.

Sterling ákvað að grínast aðeins í þeim. Hann líkti Delph við „Maltesers súkkulaðimola" og Silva við „soðið egg".

Sterling hefur verið öflugur á tímabilinu og skorað mörk á mikilvægum tímapunktum. Manchester City er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með átta stiga forystu á nágrannana í United.

Hér að neðan eru myndir af gríni Sterling.
Athugasemdir
banner
banner