ÍR hefur fengið varnarmanninn Teit Pétursson til liðs við sig fyrir Inkasso-deildina næsta sumar.
Teitur er uppalinn hjá ÍA en hann getur bæði leikið í hjarta varnarinnar og í bakverði.
Í sumar var Teitur fastamaður í liði Kára sem sigraði 3. deildina með yfirburðum.
Teitur er uppalinn hjá ÍA en hann getur bæði leikið í hjarta varnarinnar og í bakverði.
Í sumar var Teitur fastamaður í liði Kára sem sigraði 3. deildina með yfirburðum.
Teitur lék sextán leiki með HK í Inkasso-deildinni 2016 eftir að hafa árin ár áður verið á mála hjá ÍA.
Samtals á Teitur 78 leiki að baki í deild og bikar á ferlinum en hann hefur skorað tvö mörk í þeim.
ÍR endaði í 10. sæti í Inkasso-deildinni í ár en Brynjar Þór Gestsson tók við þjálfun liðsins af Arnari Þór Valssyni eftir tímabilið.
Athugasemdir