Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. febrúar 2016 11:51
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Man City og Leicester: Aguero mætir Vardy
Mynd: Getty Images
Það styttist í upphafsflautið í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar þar sem Manchester City fær Leicester City í heimsókn.

Leicester er á toppi úrvalsdeildarinnar með þriggja stiga forystu á Man City og augljóst að mikið er í húfi fyrir bæði lið í dag.

Þrír Argentínumenn eru í varnarlínu heimamanna í dag og er Sergio Agüero fremstur, en Fabian Delph, Fernandinho og Yaya Toure byrja saman á miðjunni og þá eru David Silva og Raheem Sterling einnig inná.

Gestirnir tefla fram sínu hefðbundna byrjunarliði, þar sem Jamie Vardy er einn á toppnum með Shinji Okazaki fyrir aftan sig og Marc Albrighton og Riyad Mahrez á köntunum.

Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.

Manchester City: Hart - Zabaleta, Otamendi, Demichelis, Kolarov - Delph, Fernandinho - Silva, Toure, Sterling - Aguero

Leicester City: Schmeichel; Simpson, Morgan, Huth, Fuchs; Kanté, Drinkwater, Albrighton, Okazaki, Mahrez; Vardy
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner