Haukar 4-0 Grindavík
1-0 Arnar Aðalgeirsson ('32 )
2-0 Alexander Helgason ('35 )
3-0 Gunnar Jökull Johns ('71 )
4-0 Stefnir Stefánsson ('79 )
1-0 Arnar Aðalgeirsson ('32 )
2-0 Alexander Helgason ('35 )
3-0 Gunnar Jökull Johns ('71 )
4-0 Stefnir Stefánsson ('79 )
Haukar og Grindavík mættust í leiknum um fimmta sætið í B-deild Fótbolta.net mótsins í dag, en leikið var í Reykjaneshöllinni.
Haukar komust yfir á 32. mínútu þegar að Arnar Aðalgeirsson skoraði og þremur mínútum eftir það mark skoraði Alexander Helgason og kom Haukum í 2-0.
Þannig var staðan í hálfleik, en Gunnar Jökull Johns og Stefnir Stefánsson bættu við mörkum fyrir Hauka í seinni hálfleik og lokastaðan því 4-0 fyrir Hauka.
Frábær úrslit fyrir ungt og efnilegt lið Hauka, en með sigrinum tóku Haukar fimmta sætið í B-deild Fótbolta.net mótsins og Grindvíkingar enda í því sjötta.
Athugasemdir