Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 06. febrúar 2016 20:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótbolta.net mótið: Jafnt hjá Kára og Tindastóli - Víðir vann Ægi
Jón Björgvin skoraði bæði mörk Kára í dag
Jón Björgvin skoraði bæði mörk Kára í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikir voru í C-deild Fótbolta.net mótsins í dag, en með þessum leikjum kláraðist fyrsta umferð C-deildar.

Í Riðli 1 mættust Kári og Tindastóll í Akraneshöllinni, en Jón Björgvin Kristjánsson náði að skora tvisvar fyrir Kára í fyrri hálfleik.

Staðan var 2-0 í hálfleik fyrir Kára, en Tindastóll náði endurkomu í seinni hálfleik með tveimur mörkum á 65. og 84. mínútu og lokastaðan því 2-2 í þessum leik.

Í Riðli 2 vann Víðir svo 3-1 sigur á Ægi, en leikið var í Kórnum í Kópavogi.

C-deild
Riðill 1

Kári 2 - 2 Tindastóll
1-0 Jón Björgvin Kristjánsson ('7 )
2-0 Jón Björgvin Kristjánsson ('27 )
2-1 Markaskorara vantar ('65 )
2-2 Markaskorara vantar ('84 )

Riðill 2
Ægir 1 - 3 Víðir

Athugasemdir
banner
banner
banner