Hebei China Fortune er búið að ganga frá kaupum á Gaël Kakuta, fyrrverandi leikmanni Chelsea.
Kakuta var álitinn meðal efnilegustu leikmanna heims á sínum tíma og var mikil dramatík í kringum félagsskipti hans frá Lens til Chelsea fyrir níu árum síðan.
Kakuta var álitinn meðal efnilegustu leikmanna heims á sínum tíma og var mikil dramatík í kringum félagsskipti hans frá Lens til Chelsea fyrir níu árum síðan.
Kakuta spilaði sex úrvalsdeildarleiki fyrir Chelsea og var lánaður út sex sinnum áður en Sevilla festi kaup á honum síðasta sumar.
Kakuta komst ekki í byrjunarliðið hjá Sevilla og er nú genginn til liðs við Hebei China Fortune, sem endaði í öðru sæti kínversku B-deildarinnar á síðasta tímabili og leikur því í ofurdeildinni þar í landi á komandi tímabili.
Hebei hefur verið mjög virkt á leikmannamarkaðinum og eru Gervinho og Stephane Mbia meðal nýrra liðsfélaga Kakuta.
Athugasemdir