Guus Hiddink þjálfari Chelsea sagði á blaðamannafundi í dag að nýjasti leikmaður liðsins Alexandre Pato þyrfti nokkrar vikur til að koma sér í stand til að spila.
Brasilíski landsliðsmaðurinn sem gekk í raðir Chelsea í janúar hefur ekki leikið spilað síðan í lok nóvember en þá lék hann sem lánsmaður hjá Sao Paulo
Brasilíski landsliðsmaðurinn sem gekk í raðir Chelsea í janúar hefur ekki leikið spilað síðan í lok nóvember en þá lék hann sem lánsmaður hjá Sao Paulo
Hiddink sagði að Pato ætti enn nokkuð í land með leikform en hann væri þó mjög ánægður með að hafa náð að klófesta hinn 26 ára gamla framherja.
„Hann verður ekki leikfær fyrir næstu leiki því við viljum ná honum í gott stand og ekki taka neinar áhættur,” sagði Hiddink
Athugasemdir