lau 06. febrúar 2016 12:54
Ívan Guðjón Baldursson
Hazard bað Mourinho afsökunar: Ég var með samviskubit
Mynd: EPA
Eden Hazard segist hafa sent Jose Mourinho smáskilaboð daginn sem hann var rekinn frá Chelsea.

Hazard fann fyrir samviskubiti fyrir að hafa ekki staðið sig jafn vel og á síðasta tímabili þar sem hann var iðinn við að skora og leggja upp.

„Ég sendi Mourinho skilaboð til að segja að mér þætti það leitt að hann væri farinn, og já, að mér þætti allt þetta mál leiðinlegt," sagði Hazard við The Guardian.

„Við náðum góðum árangri á síðasta tímabili, en á þessu tókst það ekki og ég var með samviskubit yfir því.

„Á síðasta tímabili var ég valinn besti leikmaður félagsins og ég hef ekki staðið mig jafn vel á þessu tímabili."

Athugasemdir
banner
banner
banner