lau 06. febrúar 2016 13:42
Ívan Guðjón Baldursson
Matti Villa skoraði tvö í æfingaleik
Mynd: Instagram - Matthías Vilhjálmsson
Rosenborg 3 - 1 Byasen
1-0 Matthías Vilhjálmsson ('41)
2-0 Matthías Vilhjálmsson ('64)
3-0 M. Hjelle ('67)
3-1 A. Gunnes ('73)

Rosenborg mætti Byasen í æfingaleik í dag og átti Matthías Vilhjálmsson góðan leik.

Matthías gekk til liðs við Rosenborg í fyrra eftir góðan árangur hjá Start og vann norsku deildina á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu.

Matti hefur gert góða hluti frá komu sinni til Rosenborg þar sem hann spilar með Hólmari Erni Eyjólfssyni.

Matti skoraði tvö mörk í 3-1 sigri á Byasen í dag, en norska tímabilið hefst eftir rétt rúman mánuð og er fyrsti leikur Matta og félaga gegn Odd Grenland þann 12. mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner