Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 06. febrúar 2016 17:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Atletico Madrid kom til baka og vann Eibar
Atletico hafði betur gegn Eibar
Atletico hafði betur gegn Eibar
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 3 - 1 Eibar
0-1 Keko ('46 )
1-1 Jose Gimenez ('56 )
2-1 Saul ('63 )
3-1 Fernando Torres ('90 )

Fyrsta leik dagsins í La Liga á Spáni er lokið, en þar tók Atletico Madrid á móti Eibar.

Fyrri hálfleikurinn var markalaus, en strax í upphafi þess seinni skoraði Keko og kom Eibar yfir, 1-0 fyrir gestina frá Eibar.

Atletico náði þó að jafna metin tíu mínútum síðar þegar miðvörðurinn efnilegi, Jose Gimenez, skoraði.

Saul kom svo Atletico yfir og Fernando Torres tryggði sigurinn endanlega í uppbótartíma með sínu öðru marki á tímabilinu.

Eftir leikinn er Atletico með 51 stig, jafnmörg og Barcelona, en Barcelona á þó tvo leiki til góða. Eibar er með 33 stig í áttunda sæti.
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 25 15 5 5 44 22 +22 50
2 FK Krasnodar 25 14 7 4 41 25 +16 49
3 Dinamo 25 12 8 5 42 33 +9 44
4 Lokomotiv 25 10 11 4 42 34 +8 41
5 Spartak 24 11 5 8 34 29 +5 38
6 CSKA 24 9 10 5 44 33 +11 37
7 Kr. Sovetov 24 10 6 8 42 35 +7 36
8 Rubin 25 10 6 9 23 30 -7 36
9 Rostov 24 9 7 8 36 38 -2 34
10 Nizhnyi Novgorod 25 8 4 13 24 33 -9 28
11 Orenburg 25 6 8 11 28 33 -5 26
12 Fakel 24 6 8 10 19 27 -8 26
13 Ural 24 6 6 12 24 38 -14 24
14 Baltica 25 6 5 14 25 31 -6 23
15 Akhmat Groznyi 24 6 5 13 23 37 -14 23
16 Sochi 24 4 7 13 26 39 -13 19
Athugasemdir
banner