Noregur 1 - 0 Ísland
1-0 Emilie Haavi ('8 )
1-0 Emilie Haavi ('8 )
Íslenska kvennalandsliðið beið lægri hlut fyrir norska landsliðinu í Algarve-bikarnum í kvöld en leiknum lauk með 1-0 sigri Noregs.
Emilie Haavi skoraði eina mark leiksins er hún kom á milli varnarmanns og markvarðar og þurfti bara að klára í netið.
Íslenska liðið fékk nokkur góð færi í leiknum en Sara Björk Gunnarsdóttir átti góðan skalla sem fór rétt framhjá og þá átti Hólmfríður Magnúsdóttir gott færi einnig.
Lokatölur þó 1-0 fyrir Norðmönnum í leiknum og ljóst að Ísland mun spila um 9. til 11. sætið á mótinu en liðið mætir Bandaríkjunum í síðasta leik riðilsins á mánudag.
Athugasemdir