Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. mars 2015 21:48
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Bournemouth kjöldróg Fulham
Mynd: Getty Images
Fulham 1 - 5 Bournemouth
0-1 Brett Pitman ('29 )
0-2 Matt Ritchie ('37 )
0-3 Brett Pitman ('61 )
1-3 Alex Smith ('66 )
1-4 Matt Ritchie ('71 )
1-5 Steve Cook ('85 )

Bournemouth er í toppsæti Championship-deildarinnar eftir magnaðan 1-5 sigur á Fulham í kvöld en leikurinn fór fram á Craven Cottage.

Brett Pitman kom gestunum yfir eftir hálftímaleik áður en Matt Ritchie bætti við öðru nokkrum mínútum síðar.

Pitman skoraði annað mark sitt og þriðja mark Bournemouth á 61. mínútu svo áður en Alex Smith minnkaði muninn. Ritchie skoraði fjórða mark gestanna svo áður en Steve Cook gulltryggði sigur Bournemouth.

Lokatölur 1-5. Bournemouth er í efsta sæti deildarinnar með 66 stig en Fulham í 20. sæti með 29 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner