Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 06. mars 2015 05:55
Daníel Freyr Jónsson
England um helgina - Fjórðungsúrslit í bikarnum
Liverpool mætir Blackburn í bikarnum.
Liverpool mætir Blackburn í bikarnum.
Mynd: Getty Images
Einungis einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem framundan eru átta liða úrslit FA-bikarsins.

QPR og Tottenham mætast klukkan 15:00 á morgun í Lundúnarslag, þar sem heimamenn þurfa nauðsynlega á sigri að halda í fallbaráttunni.

Bikarhelgin verður hinsvegar þegar hafin á þeim tíma, þar sem Bradford og Reading mætast í hádeginu á morgun. Deginum lýkur svo með viðureign Birminghamliðana Aston Villa og WBA.

Á sunnudag fer svo einn leikur fram þegar Liverpool fær Championship-deildarlið Blackburn í heimsókn á Anfield.

Laugardagur:
15:00 QPR - Tottenham Beint á Stöð 2 Sport 2

FA-bikarinn:
12:45 Bradford - Reading Beint á Stöð 2 Sport
17:30 Aston Villa - WBA Beint á Stöð 2 Sport

Sunnudagur:
FA-bikarinn
16:00 Liverpool - Blackburn Beint á Stöð 2 Sport
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner