Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 06. mars 2015 08:00
Daníel Freyr Jónsson
Herrera: Verðum að skora fyrr í leikjum
Mynd: Getty Images
Ander Herrera, leikmaður Manchester United, segir að liðið verði að fara að skora fyrr í leikjum.

United hefur unnið síðustu tvo leiki með mörkum sem skoruð hafa verið seint í leiknum. Liðið lagði Newcastle í vikunni með einu mark sem leit dagsins ljós á 88. mínútu.

,,Þegar maður vinnur leiki seint, þá er maður ánægður. Við verðum samt að bæta okkur," sagði spænski miðjumaðurinn eftir leikinn gegn Newcastle.

,,Við verðum að skora fyrr í leikjum því við erum að fara með stuðningsmennina okkar."

,,Við áttum skilið að skora fyrr í leiknum og við vorum frekar svekktir í hálfleik því við áttum að vera að vinna."
Athugasemdir
banner
banner
banner