Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. mars 2015 23:35
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Levante kom til baka og sigraði Eibar
Mynd: Getty Images
Levante 2 - 1 Eibar
0-1 Saul ('55 )
1-1 David Barral ('65 )
2-1 Kalu Uche ('67 )


Rautt spjald:Dani Garcia, Eibar ('89)

Levante lagði Eiber með tveimur mörkum gegn einu í spænsku deildinni í kvöld en gestirnir komust yfir í leiknum.

Saul kom Eibar yfir á 55. mínútu leiksins áður en Levante tókst að snúa dæminu við á nokkrum mínútum.

David Barral jafnaði metin á 65. mínútu áður en Kalu Uche skoraði sigurmarkið tveimur mínútum síðar.

Dani Garcia fékk að líta rauða spjaldið í liði Eibar undir lok leiks en lokatölur í kvöld, 2-1, Levante í vil. Eibar er í þrettánda sæti með 27 stig en Levante í sextánda með 25 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner