Stuttgart 0 - 0 Hertha
Rautt spjald:Nico Schulz, Hertha ('90)
Rautt spjald:Nico Schulz, Hertha ('90)
Stuttgart og Hertha Berlin gerðu markalaust jafntefli í þýsku deildinni í kvöld.
Heimamenn voru töluvert meira með boltann en þeim tókst þó ekki að nýta sér það og misstu af mikilvægum stigum í fallbaráttunni.
Nico Schulz fékk þá að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt undir lokin í liði Herthu Berlin en lokatölur í kvöld 0-0.
Stuttgart er á botninum með 20 stig en Hertha Berlin er í fjórtánda sæti með 25 stig.
Athugasemdir