Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. mars 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Carragher líkir Pogba og Alexis við börn á leikvelli
Mynd: Getty Images
Paul Pogba og Alexis Sanchez voru gagnrýndir fyrir slakan fyrri hálfleik gegn Crystal Palace.

Manchester United vann leikinn eftir að hafa lent 2-0 undir en Pogba og Alexis sluppu ekki við gagnrýni frá Gary Neville og Jamie Carragher á Sky Sports.

„Sjáðu hversu lélegir Manchester United eru búnir að vera með boltann. Þú talar um að Pogba sé búinn að vera slæmur en að mínu mati er Sanchez búinn að vera verri," sagði Carragher við Neville í hálfleik.

„Sanchez tapaði boltanum 19 sinnum í fyrri hálfleik. Það er vægast sagt ótrúlegt, við erum að tala um leikmann sem á að vera í heimsklassa.

„Alexis og Pogba eru svolítið eins og börn á leikvelli sem halda að þeir geti komist upp með hvað sem er bara því þeir eru bestir."

Athugasemdir
banner
banner