„Við spiluðum glæsilegan varnarleik," sagði landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir eftir markalaust jafntefli Íslands og Hollands á Algarve mótinu í gær.
„Þær fengu ekki mörg opin færi. Við lögðum upp með það fyrir þetta mót að styrkja varnarleikinn og mér finnst við hafa gert það. Liðsheildin er frábær."
„Þær fengu ekki mörg opin færi. Við lögðum upp með það fyrir þetta mót að styrkja varnarleikinn og mér finnst við hafa gert það. Liðsheildin er frábær."
Smelltu hér til að horfa á viðtal við Frey sem tekið var eftir leikinn í gær
„Framtíðin er björt með allar þær ungu sem eru að koma inn, þær koma inn með frábæra orku og það er mjög gaman að hafa þær. Ég er ánægð með varnarleik okkar á mótinu en við getum bætt okkur í sóknarleiknum."
Með leiknum í gær lauk riðlakeppni Algarve mótsins en Ísland mun leika gegn Danmörku um níunda sætið annað kvöld. Liðin voru saman í riðli og viðureign liðsins þá endaði með markalausu jafntefli.
Athugasemdir