Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. maí 2015 07:00
Daníel Freyr Jónsson
David Moyes orðaður við Newcastle
David Moyes gæti komið aftur til Englands.
David Moyes gæti komið aftur til Englands.
Mynd: Getty Images
David Moyes gæti snúið aftur í enska boltann fyrir næstu leiktíð og tekið við Newcastle United samkvæmt þarlendum fjölmiðlum.

Skotinn stýrir í dag Real Sociedad, en hann hefur þegar gefið það út að hann stefni á að vera áfram á Spáni.

John Carver stýrir Newcastle út leiktíðina þrátt fyrir að liðið sé það slakasta í ensku úrvalsdeildinni þessar vikurnar og hefur tapað átta leikjum í röð.

Moyes hefur undanfarið verið orðaður við stjórastöðu West Ham þar sem búist er við að Sam Allardyce hætti störfum eftir tímabilið. Því er ljóst að það er engin skortur á eftirspurn eftir starfskröfum Moyes á Englandi þrátt fyrir misheppnaða dvöl hans hjá Manchester United á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner