Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. maí 2015 06:00
Magnús Már Einarsson
Elmar Bragi í Huginn (Staðfest)
Mynd: Úr einkasafni
Elmar Bragi Einarsson hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Huginn.

Elmar Bragi er varnar og miðjumaður en hann spilaði með HK í 1. deildinni í fyrra.

Í vetur gekk Elmar Bragi til liðs við Fjarðabyggð en eftir stutt stopp þar hefur hann nú gengið til liðs við Huginn.

Elmar spilaði með Huginn frá 2003 til 2009 áður en hann gekk til liðs við Hött.

Huginn mætir Ægi í 1. umferðinni í 2. deild karla næstkomandi sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner