Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. maí 2015 08:30
Daníel Freyr Jónsson
Jeremy Mathieu ekki með í kvöld
Jeremy Mathieu.
Jeremy Mathieu.
Mynd: Getty Images
Franski varnarmaðurinn Jeremy Mathieu er meiddur og mun ekki taka þátt í leik Barcelona gegn FC Bayern í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Mathieu er meiddur á hásin og þýðir þetta að annaðhvort Marc Bartra eða Javier Mascherano mun taka sæti hans við hlið Gerard Pique í hjarta varnarinnar hjá spænska stórliðinu.

Þá var óljóst hvort að Jordi Alba yrði leikfær, en eftir skoðun í gær er ljóst að hann er klár fyrir leikinn.

Það verður því fámennur meiðslalisti hjá Barcelona í kvöld, á meðan menn eins og David Alaba, Franck Ribery, Arjen Robben og Sebastian Rodes eru allir á meiðslalista Bayern.
Athugasemdir
banner
banner