Steve McClaren, stjóri Derby County, segist ekki ætla að taka við Newcastle United í sumar.
McClaren hefur verið sterklega orðaður við Newcastle en allt er í tómu tjóni þar undir stjórn John Carver.
McClaren mistókst að koma Derby í ensku úrvalsdeildina á dögunum en hann segist ekki ætla að hoppa frá borði til að taka við Newcastle í sumar.

„Það hefur aldrei verið í huga mínum. Ég hef sagt síðan í janúar að einbeiting mín er á Derby," sagði McClaren.
„Það hafa verið miklar sögusagnir. Ég endurtek það sem ég sagði á laugardaginn eftir leikinn og það sem ég sagði við stjórnina og leikmenn í gær að ég er 100% skuldbundinn vinnunni hér."
Athugasemdir