Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 06. maí 2015 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Neuer: Getum snúið þessu við
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer var svekktur með tapið gegn Börsungum en er jákvæður fyrir síðari viðureign liðanna í Þýskalandi og segir að allt getur gerst.

Bayern tapaði til að mynda 3-1 gegn Porto í 8-liða úrslitum en vann síðari leikinn heima, 6-1.

„Við sáum það gegn Porto að það er alltaf möguleiki á að snúa leik við," sagði Neuer eftir tapið.

„Núna erum við samt að spila við annað lið og við sáum hversu erfitt er að skapa sér færi gegn þeim. Við megum aldrei segja aldrei, við verðum að trúa því að við getum snúið þessu við."

Thomas Müller talaði á svipuðum nótum eftir leik og ljóst er að leikmenn Bayern hafa tröllatrú á sjálfum sér enda margir hverjir Heimsmeistarar.

„Í seinni hálfleik leið mér eins og við höfðum stjórn á leiknum. Það er ekki auðvelt að spila hérna, en mér leið ekki eins og við gætum tapað 3-0," sagði Müller.

„Við erum Bayern og við höldum alltaf haus. Staðreyndin er sú að þetta var óvænt, rétt eins og gegn Porto. Það væri magnað að komast í úrslit og við ætlum að gera okkar allra besta í München."
Athugasemdir
banner
banner
banner