Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 06. maí 2015 12:15
Elvar Geir Magnússon
Neymar eyðir 300 þúsund krónum á mánuði í hárið
Neymar á æfingu með Brasilíu.
Neymar á æfingu með Brasilíu.
Mynd: Getty Images
Brasilíski snillingurinn Neymar eyðir 300 þúsund íslenskum krónum á mánuði í hárgreiðsluna sína en spænska blaðið Sport greinir frá þessu.

Eins og margir fótboltamenn nútímans leggur þessi magnaði leikmaður Barcelona ofuráherslu á hár sitt.

Það er stílistinn Wagner Tenorio sem sér um hárið á Neymar en hann vinnur fyrir fjölmarga fræga einstaklinga.

„Þegar Neymar kom fyrst til Barcelona var hárið hans í slæmu standi. Hann hafði breytt því of oft, bæði greiðslur og liti. Það skildi hárið eftir í slæmu ástandi. Ég byrjaði á að klippa hann og svo fór ákveðið ferli í gang og í dag hefur hann silkihár," segir Tenorio.

Neymar lætur einkabílstjóra sækja Tenorio sem segist ekki taka undir 300 þúsund krónur á mánuði fyrir alla þessa þjónustu.

Fyrir fólk sem vill sjá hárið á Neymar þá verður hann í eldlínunni gegn Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld. Beint á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner