Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. maí 2015 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Guðmundur Steinn setti tvö í bikarnum
Guðmundur Steinn Hafsteinsson á farsælan feril að baki í íslenska boltanum.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson á farsælan feril að baki í íslenska boltanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu í norska bikarnum í dag en aðeins einum þeirra tókst að skora.

Það var Guðmundur Steinn Hafsteinsson, sem lék með Fram í Pepsi-deildinni í fyrra og skoraði þar fimm mörk í tólf leikjum.

Notodden er í norsku C-deildinni og lagði B-deildarliðið Jerv af velli í bikarnum.

Jerv komst yfir snemma leiks en heimamenn í Notodden jöfnuðu hálftíma síðar.

Guðmundur Steinn kom heimamönnum svo yfir rétt fyrir leikhlé og innsiglaði sigurinn á 61. mínútu.

Íslendingaliðin Rosenborg, Lilleström og Aalesund komust öll áfram í 32-liða úrslitin á meðan Start, Vålerenga og Sandnes Ulf eru úr leik.
Athugasemdir
banner
banner