Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 06. maí 2015 14:30
Magnús Már Einarsson
Ramos spilaði á miðjunni: Var til í að fórna mér fyrir liðið
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos átti ekki góðan dag á miðjunni hjá Real Madrid í 2-1 tapinu gegn Juventus í gær.

Ramos hefur ekki leikið oft á miðjunni á ferli sínum og hann vissi upp á sig sökina eftir leikinn í gær.

„Ég er hér til að hjálpa liðinu á hvaða hátt sem er," sagði Ramos eftir leikinn.

„Þetta virkaði um daginn (að spila á miðjunni) en þetta var lélegur leikur hjá mér og liðinu. Ég hef trú á þjálfaranum og ég var til í að fórna mér fyrir liðið."

„Ég þarf að hlaupa mun meira í hjarta varnarinnar en það er ekki stórt áhyggjuefni fyrir mig. Við verðum að vera tilbúnir að gagnrýna sjálfan okkur og læra af mistökum okkar."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner