fös 06. maí 2016 14:53
Magnús Már Einarsson
Alexander Helgi í Breiðablik (Staðfest)
Alexander Helgi Sigurðsson og Arnar Grétarsson þjálfari Breiðabliks.
Alexander Helgi Sigurðsson og Arnar Grétarsson þjálfari Breiðabliks.
Mynd: Blikar.is
Miðjumaðurinn efnilegi Alexander Helgi Sigurðsson hefur ákveðið að koma aftur til Íslands og spila með uppeldisfélaginu sínu Breiðablik. Blikar.is greina frá þessu.

Alexander Helgi sem er tvítugur á þessu ári hefur undanfarin ár verið á samningi hjá hollenska félaginu AZ Alkmaar.

„Hann hefur leikið 10 leiki með U-17 ára og 8 leiki með U-19 ára landsliði Íslands þannig að þetta er mikill akkur fyrir Blikaliðið að fá Alexander heim aftur," segir á Blikar.is.

„Alexander Helgi spilar yfirleitt sem djúpur miðjumaður en getur líka spilað aðra stöður. Hann var líka efnilegur frjálsíþróttamaður og átti meðal annars sæti í boðhlaupssveit Breiðabliks í 4x200 metra hlaupi sem setti Íslandsmet í flokki 15 ára árið 2009."

„Breiðablik fagnar komu Alexander Helga til félagsins og bindum við miklar vonir að hann eigi eftir að styrkja Blikaliðið mikið á komandi árum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner