Mousa Dembele, miðjumaður Tottenham, hefur verið dæmdur í sex leikja bann eftir að hafa potað í auga Diego Costa, sóknarmanns Chelsea.
Belgíski landsliðsmaðurinn áfrýjaði ekki ákæru enska sambandsins en dómarinn sá ekki umrætt atvik. Það náðist hinsvegar á myndbandsupptöku.
Belgíski landsliðsmaðurinn áfrýjaði ekki ákæru enska sambandsins en dómarinn sá ekki umrætt atvik. Það náðist hinsvegar á myndbandsupptöku.
Enska knattspyrnusambandið taldi að hátterni Dembele væri alvarlegra en svo að hann ætti að fara í hið hefðbundna þriggja leikja bann.
Tímabilinu er því lokið hjá Dembele en Tottenham er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Very unnecessary from Dembele, done for the season https://t.co/AKbyQ8iDS9
— Òré (@TheOfficialOre) May 2, 2016
Athugasemdir