KSÍ er með fréttamannafund í dag klukkan 13:15 þar sem 23 manna leikmannahópur Íslands fyrir Evrópumót landsliða verður opinberaður.
Viðstaddir verða þjálfarar liðsins og aðrir fulltrúar KSÍ.
Fótbolti.net verður að sjálfsögðu á staðnum og færir fréttir af fundinum.
Hópurinn leikur vináttulandsleik gegn Noregi ytra 1. júní og svo á Laugardalsvelli gegn Liechtenstein 6. júní.
Ísland er með Austurríki, Portúgal og Ungverjalandi í riðli á EM og á fyrsta leik gegn Portúgal 14. júní.
Athugasemdir