Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. maí 2016 11:30
Magnús Már Einarsson
Henderson og Origi gætu náð úrslitaleiknum
Jordan Henderson.
Jordan Henderson.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson og Divock Origi verða mögulega klárir í slaginn þegar Liverpool mætir Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þann 18. maí.

Henderson og Origi meiddust í síðasta mánuði og reiknað var með að þeir yrðu frá keppni út tímabilið. Þeir ætla nú að leggja allt í sölurnar til að ná úrslitaleiknum.

„Ég gat séð á augunum (á Henderson) að hann telur að hann eigi möguleika. Það sama á við um Divock Origi," sagði Jurgen Klopp stjóri Liverpool á fréttamannafundi í dag.

Liverpool mætir Watford í næstsíðustu umferðinni í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

„Ég hef bara haft nokkrar sekúndur til að hugsa um liðsuppstillingu fyrir sunnudaginn. Það verða nokkrar breytingar," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner