Inter getur tryggt sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar með sigri á Empoli í fyrsta leik helgarinnar í ítalska boltanum. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 á laugardaginn.
Bologna tekur svo á móti AC Milan í beinni á Stöð 2 Sport seinna um kvöldið.
Bologna tekur svo á móti AC Milan í beinni á Stöð 2 Sport seinna um kvöldið.
Roma fær Chievo í heimsókn í fyrsta leik sunnudagsins og getur komist yfir Napoli og í 2. sæti með sigri.
Fallbaráttulið Palermo heimsækir Fiorentina á sama tíma og Carpi fær Lazio í heimsókn. Þessir tveir leikir eru gríðarlega mikilvægir í fallbaráttunni, sem og viðureign Atalanta og Udinese þar sem Emil Hallfreðsson og félagar í Udinese geta lent í fallhættu með tapi.
Þá mætast Sampdoria og Genoa í einum af hatrömmustu erkifjendaslögum Evrópu en um kvöldið eiga Ítalíumeistarar Juventus leik við botnlið Verona á sama tíma og Napoli heimsækir Torino.
Laugardagur:
16:00 Inter - Empoli (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Bologna - AC Milan (Stöð 2 Sport)
Sunnudagur:
10:30 Roma - Chievo (Stöð 2 Sport 2)
13:00 Fiorentina - Palermo
13:00 Sampdoria - Genoa
13:00 Frosinone - Sassuolo
13:00 Carpi - Lazio
13:00 Atalanta - Udinese
18:45 Verona - Juventus (Stöð 2 Sport 4)
18:45 Torino - Napoli
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir