Norwich og Manchester United mætast í hádeginu á morgun í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst 11:45.
Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið. Manchester United þarf að vinna til að halda í vonina um Meistaradeildarsæti og Norwich er í fallsæti og þarf á öllum stigunum að halda.
Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið. Manchester United þarf að vinna til að halda í vonina um Meistaradeildarsæti og Norwich er í fallsæti og þarf á öllum stigunum að halda.
Ryan Bennett var ekki með Norwich í tapinu gegn Arsenal vegna veikinda og hann er tæpur fyrir leikinn á morgun.
Timm Klose og Alexander Tettey eru enn á meiðslalistanum.
Miðjumaðurinn Marouane Fellaini er í leikbanni hjá Manchester United.
Á meiðslalista United eru þeir Luke Shaw og Bastian Schweinsteiger.
Athugasemdir