Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 06. maí 2016 22:25
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Þorvaldur virtist kýla Reyni í punginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK og Keflavík skildu jöfn 1-1 í Kórnum í Inkasso-deildinni í dag.

Þorvaldur Örlygsson og Reynir Leósson, þjálfarar liðanna, voru ósáttir að leikslokum eins og hægt er að sjá á viðtölum sem tekin voru að leikslokum.

Vísir hefur birt myndband af því þegar þjálfararnir gengu af velli að leikslokum og virtist Þorvaldur kýla Reyni í punginn.

Myndbandið er hægt að sjá með því að smella hér, en hvorugur gerði mál úr þessu og því ólíklegt að eitthvað alvarlegt hafi átt sér stað.

Viðtal við Þorvald að leikslokum má finna hér og viðtal við Reyni hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner