HK gerði jafntefli við Keflavík í Kórnum í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar.
Ragnar Leósson kom HK yfir með marki úr vítaspyrnu á 63. mínútu en Sigurbergur Elísson jafnaði svo fyrir Keflavík á 80. mínútu.
Ragnar Leósson kom HK yfir með marki úr vítaspyrnu á 63. mínútu en Sigurbergur Elísson jafnaði svo fyrir Keflavík á 80. mínútu.
Mikill hiti var í mönnum á lokamínútunum og fékk Guðjón Árni Antoníusson, leikmaður Keflvíkinga, beint rautt spjald í uppbótartíma.
Þá tókust þjálfarar liðanna á að leikslokum og skutu á hvorn annan í viðtölum eftir leik.
Mörkin úr Kórnum er hægt að sjá á vefsíðu Vísis. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir