Mainoo opinn fyrir Napoli - Tekur Gerrard við Boro? - Forest vill 120 milljónir punda - Kröfur Vinicius gætu ýtt honum í burtu
   fim 06. júní 2013 12:45
Magnús Már Einarsson
Grétar Rafn með söfnun fyrir Reykjadal - Vilt þú vinna treyju?
Taktu þátt í treyjupotti og styrktu gott málefni
Grétar Rafn Steinsson.
Grétar Rafn Steinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson með eina af treyjunum sem eru í pottinum.
Jóhann Berg Guðmundsson með eina af treyjunum sem eru í pottinum.
Mynd: Treyjupottur
Hólmfríður Magnúsdóttir setti þessa treyju í pottinn.
Hólmfríður Magnúsdóttir setti þessa treyju í pottinn.
Mynd: Treyjupottur
Birkir Bjarnason með Pescara treyju sem er í pottinum.
Birkir Bjarnason með Pescara treyju sem er í pottinum.
Mynd: Treyjupottur
Grétar Rafn Steinsson, leikmaður Kayserispor og íslenska landsliðsins, stendur þessa dagana fyrir söfnunarátaki í samstarfi við íslenskt afreksfólk í fótbolta og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem reka Reykjadal.

Um er að ræða treyjupott þar sem almenningur á kost á að vinna yfir 50 áritaðar treyjur frá íslenskum atvinnumönnum þar á meðal Gylfa Þór Sigurðssyni, Eiði Smára Guðjohnsen, Kolbeini Sigþórssyni og Aroni Einari Gunnarssyni sem og landsliðskonum Íslands en hér að neðan má sjá listann í heild. Hver einasta króna sem kemur inn rennur óskert beint á reikning Reykjadals.

Allt sem þú þarft að gera er að hringja í síma 901 7171 og þá styrkir þú starfið í Reykjadal um 2.000 kr. Þar með ert þú komin(n) í pottinn sem dregið verður úr þann 11. júní næstkomandi.

Fylgstu með á Facebook síðu átaksins: https://www.facebook.com/Treyjupottur

Vinningar:
Í boði eru yfir 50 áritaðar treyjur frá flestum af okkar fremstu knattspyrnukonum og -mönnum. Ýmist er um að ræða treyjur þeirra liða sem þau spila með á erlendri grund eða íslensku landsliðstreyjuna.

Útdráttur:
Dregið verður þann 11. júní undir vökulum augum fulltrúa sýslumanns. Vinningaskrá verður birt hér um leið og dregið hefur verið og í kjölfarið mun Pósturinn hefjast handa við að koma treyjum til vinningshafa.

Skilmálar:
"Með þátttöku í treyjupottinum heimilar þú fjarskiptafyrirtækjum að afhenda upplýsingar um númer þitt til forsvarsmanna Reykjadals eða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Þær upplýsingar verða ekki notaðar í öðrum tilgangi en að draga um treyjur.“

Um Verkefnið:
Sumarbúðirnar í Reykjadal fagna um þessar mundir 50 ára afmæli en Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að rekstri þeirra frá upphafi. Megin markmið Reykjadals er að þau börn sem ekki geta sótt aðrar sumarbúðir, vegna sérþarfa sinna, hafi kost á sumardvöl, þar sem þau geta notið lífsins á eigin forsendum. Í Reykjadal koma árlega um 200 fötluð börn og ungmenni allsstaðar að af landinu og á þjónustan sér enga hliðstæðu hér á landi.

Treyjupottur Reykjadals er söfnunarátak sem knattspyrnumaðurinn Grétar Rafn Steinsson stendur að í samstarfi við íslenskt afreksfólk í knattspyrnu sem gefið hafa treyjur sínar til þessa frábæra málefnis og Styrkarfélag lamaðra og fatlaðra sem reka Reykjadal, sumardvalarheimili fyrir fötluð börn í Mosfellsdal. Hver einasta króna sem kemur inn rennur óskert beint á reikning Reykjadals.

Treyjurnar í pottinum:

England:
A deild:
Tottenham: Gylfi Þór Sigurðsson.
B-deild:
Cardiff: Aron Einar Gunnarsson, Heiðar Helguson
Wolves: Eggert Gunnþór Jónsson
D-deild:
Rotherham: Kári Árnason
A-deild kvenna:
Liverpool: Katrín Ómarsdóttir
Chelsea: Edda Garðarsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir

Þýskaland:
B-deild:
Bochum: Hólmar Örn Eyjólfsson
ÍTALÍA:
A-deild:
Pescara: Birkir Bjarnason
Juventus: Hörður Björgvin Magnússon
B-deild:Verona: Emil Hallfreðsson

Noregur:
A-deild:
Brann: Birkir Már Sævarsson
Lilleström: Pálmi Rafn Pálmason,
Viking: Indriði Sigurðsson, Jón Daði Böðvarsson
Hönefoss: Kristján Örn Sigurðsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Sandnes Ulf: Steinþór Freyr Þorsteinsson
Sarpsborg: Guðmundur Þórarinsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Haraldur Björnsson
Start: Matthías Vilhjálmsson, Guðmundur Kristjánsson
B-deild:
Ull/Kisa: Stefán Logi Magnússon
A-deild kvenna:
Avaldsnes: Hólmfríður Magnúsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Mist Edvardsdóttir
Kolbotn: Fanndís Friðriksdóttir
Arna-Björnar: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Vålerenga: Sandra Sif Magnúsdóttir

Svíþjóð:
A-deild:
AIK: Helgi Valur Daníelsson
Norrköping: Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Halmstad: Kristinn Steindórsson, Guðjón Baldvinsson
Elfsborg: Skúli Jón Friðgeirsson
Mjälby: Hannes Þ. Sigurðsson
B-deild karla:
Sundsvall: Ari Freyr Skúlason, Jón Guðni Fjóluson
A-deild kvenna:
Umeå: Katrín Jónsdóttir
Kristianstad: Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný B. Óðinsdóttir, Sif Atladóttir, Malmö Þóra B. Helgadóttir, Sara B. Gunnarsdóttir
Piteå: Hallbera Guðný Gísladóttir

Danmörk:
A-deild:
FC Köbenhavn: Rúrik Gíslason
SönderjyskE: Hallgrímur Jónasson
Randers: Theódór Elmar Bjarnason,
Esbjerg: Arnór Smárason
Silkeborg: Bjarni Þór Viðarsson
B-deild:
Vejle-Kolding: Davíð Þór Viðarsson

Belgía:
Cercle Brugge: Arnar Þór Viðarsson vantar
Zulte-Waregem: Ólafur Ingi Skúlason
Club Brugge: Eiður Smári Guðjohnsen
OH Leuven: Stefán Gíslason

Tyrkland:
Kayserispor:
Grétar Rafn Steinsson

Holland:
Ajax: Kolbeinn Sigþórsson
AZ Alkmaar: Jóhann Berg Guðmundsson, Aron Jóhannsson
NEC Nijmegen: Guðlaugur Victor Pálsson
Heerenveen: Alfreð Finnbogason
Athugasemdir
banner
banner