Sauð upp úr í klefanum eftir tapið gegn ÍBV
Vefsíða Morgunblaðsins hefur birt tilkynningu frá knattspyrnudeild Fylkis en tilkynningin var ekki send til Fótbolta.net.
Þar er staðfest það sem við greindum frá fyrr í dag en Ásmundur Arnarsson hefur verið látinn taka pokann sinn hjá Fylki.
Þar er staðfest það sem við greindum frá fyrr í dag en Ásmundur Arnarsson hefur verið látinn taka pokann sinn hjá Fylki.
Ekki er talað um hver muni taka við en sagan segir að Hermann Hreiðarsson verði næsti þjálfari Árbæjarliðsins.
Fylkismenn steinlágu 4-0 gegn ÍBV í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins um helgina en samkvæmt heimildum Fótbolta.net sauð upp úr í klefa liðsins eftir leikinn. Ásgeir Börkur Ásgeirsson fyrirliði og Ólafur Geir Magnússon í meistaraflokksráði áttu þar hörð orðaskipti.
Árbæingar eru í 7. sæti í Pepsi-deildinni með 13 stig eftir 10 leiki en fyrir tímabilið var gefið út að stefnan væri sett á Evrópusæti.
Tilkynning frá Fylki:
Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis og Ásmundur Arnarsson hafa komist að samkomulagi um að Ásmundur láti af störfum sem þjálfari mfl. Fylkis frá og með deginum í dag.
Fylkir vill þakka Ásmundi fyrir samstarfið á undanförnum árum og óskar Ásmundi velgengis í framtíðinni.
Ásmundur þakkar leikmönnum og stuðningsmönnum Fylkis fyrir samstarfið á undanförnum árum og óskar Fylki alls hins besta á komandi árum.
Athugasemdir