Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, þjálfari Þróttar, var nokkuð sátt með seinni hálfleik sinna stúlkna í 2-0 tapi gegn Val í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 2 Valur
„Ég er ekki ánægð með fyrri hálfleikinn, við áttum eiginlega ekki góðan fyrri hálfleikinn í dag. En ég er ánægð með seinni hálfleikinn og sérstaklega síðustu 20 mínúturnar. Við vorum náttúrulega bara að setja pressu þegar seinna markið kom, en það er svekkjandi að fá ekki allavega stig út úr þessu," sagði Guðrún Jóna við Fótbolta.net.
„Það er nóg af leikjum eftir og ég er alls ekki búin að vera óánægð með spilamennskuna þrátt fyrir að stigin hafi ekki verið að koma. Það býr gríðarlega mikið í þessu liði, það eru bara þrjú stig þar. Ég hef engar áhyggjur af þessu."
Athugasemdir