Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 06. júlí 2015 12:25
Elvar Geir Magnússon
Gunnar Heiðar: Kem heim sem betri persóna
Gunnar Heiðar hefur leikið 24 landsleiki og skorað 5 mörk.
Gunnar Heiðar hefur leikið 24 landsleiki og skorað 5 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson gengur í raðir ÍBV á ný um miðjan júlí en þessi 33 ára leikmaður hefur gert þriggja ára samning við Eyjamenn.

Þetta er öflugur styrkur fyrir Eyjamenn sem eru í fallsæti í Pepsi-deildinni en Gunnar er að koma heim eftir ellefu ár í atvinnumennsku. Hann lék síðast með ÍBV árið 2004 en hann hefur verið í herbúðum Hacken í Svíþjóð að undanförnu.

„Í júní tókum við þá ákvörðun að ég myndi koma heim í nóvember að loknum samningstíma mínum við Hacken. Ég hafði þá talað við framkvæmdastjórann til að kanna áhugann um að framlengja um tvö ár en mér var tjáð að ég mæti fara leita mér að öðru félagi ef ég vildi fá lengri samning," segir Gunnar í viðtali við Eyjafréttir.

„Ég hugsaði með mér: Fyrst ég er að koma heim í nóvember af hverju ekki bara að drífa mig? Það togaði líka enn meira að Bjarný (eiginkona hans) er ófrísk og ég vildi koma heim og hjálpa til því það er nóg að gera hjá henni. Ég hafði þá samband við ÍBV og tjáði þeim að ég væri að flytja til Íslands í júlí og þeir voru heldur betur glaðir og fóru á fullt að reyna fá mig en það var aldrei nein spurning í mínum huga."

Gunnar hefur verið úti án fjölskyldunnar í eitt og hálft ár og segir að fjarbúðin hafi verið erfið.

„Þegar ég kom til Eyja í tveggja vikna frí núna í júní sá ég hvað peyjarnir okkar eru að blómstra hér í frelsinu og okkur fannst ótímabært að rífa þá upp aftur en þeir eru mikið búnir að vera á flakki," segir Gunnar í Eyjafréttum.

„Þetta var draumlending að koma heim og loka fótboltaferlinum heima eins og ég ætlaði alltaf að gera. Ég er búinn að vera í ellefu ár úti, búin að sjá allt, prufa allt og lenda í öllu. Ég er alveg komin með meistaragráðu í því hvernig er að vera atvinnumaður. Ég kem heim sem betri persóna og kem til með að geta miðlað minni reynslu til leikmanna ÍBV. Ég hlakka mikið til að byrja að spila og bera merki ÍBV á brjóstinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner