Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. júlí 2015 16:26
Magnús Már Einarsson
Iker Casillas sagður á leið til Porto
Mynd: Getty Images
Iker Casillas, markvörður Real Madrid, er á leið til Porto samkvæmt frétt spænska ríkissjónvarpsins.

Porto hefur lagt fram tilboð í Casillas og markvörðurinn er sjálfur spenntur fyrir tilboðinu.

Þetta ýtir undir orðróm þess efnis að Real Madrid muni kaupa David De Gea frá Manchester United á næstu vikum.

Hinn 34 ára gamli Casillas hefur spilað með Real Madrid síðan hann var níu ára.

Hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 1999 og hefur síðan þá leikið yfir 500 deildarleiki með Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner