Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur keypt kantmanninn Nani frá Manchester United.
Kaupverðið hljóðar upp á fjórar milljónir punda.
Kaupverðið hljóðar upp á fjórar milljónir punda.
Nani er 28 ára gamall en hann kom til Manchester United frá Sporting Lisabon árið 2007.
Á síðasta tímabili var Nani einnig í láni hjá Sporting en hann var ekki ofarlega á lista hjá Louis van Gaal stjóra United.
Portúgalinn mun nú spila í Tyrklandi á komandi tímabili en hann gerði þriggja ára samning við Fenerbahce.
Athugasemdir