Newcastle er að undirbúa tilboð í Georginio Wijnaldum miðjumann PSV Eindhoven samkvæmt frétt Sky Sports.
Zenit St Pétursborg hefur lagt fram tilboð í Wijnaldum en Newcastle hefur einnig áhuga á kappanum.
Zenit St Pétursborg hefur lagt fram tilboð í Wijnaldum en Newcastle hefur einnig áhuga á kappanum.
Samkvæmt frétt Sky ætlar Newcastle að bjóða í hollenska landsliðsmanninn síðar í vikunni.
Talið er að verðmiðinn á Wijnaldum hljóði upp á 15 milljónir punda en hann var leikmaður ársins í Hollandi á síðasta tímabili.
Newcastle hefur ekki ennþá keypt leikmanna í sumar en félagið er einnig að skoða framherjann unga Ivan Toney sem raðaði inn mörkum með Northampton í ensku D-deildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir