Þjálfari Newcastle Steve McClaren gæti gert Ivan Toney framherja Northampton að hans fyrstu kaupum hjá Newcastle.
Samkvæmt heimildum Sky fylgjast Newcasle náið með gangi mála hjá þessum 19 ára gamla leikmanni.
Toney, sem að er yngsti leikmaður til þess að spila í sögu Northampton, var nálægt því að fara til Wolves í nóvember en hann stóðst ekki læknisskoðun og því varð ekkert úr því.
Þessi ungi leikmaður skoraði 13 mörk í 29 byrjunarliðsleikjum með Northampton.
„Ég veit að stuðningsmenn eru óþolinmóðir og vilja sjá nýja leikmenn koma til félagsins strax. Það er eðlilegt. En fyrir mig sem stjóra er svo mikilvægt að það séu réttu leikmennirnir sem eru að koma." sagði McClaren.
Athugasemdir