Ólafur Brynjólfsson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður eftir 2-0 sigur sinna stúlkna gegn Þrótti í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 2 Valur
„Það er alltaf gaman að vinna, mjög gott. Það vantaði sko ekki færin en sem betur fer skoruðum við tiltölulega snemma. Maður var rólegri en maður var samt aldrei rólegur fyrr en við setjum annað markið í lokin," sagði Ólafur við Fótbolta.net.
„Ég er mjög sáttur með frammistöðuna, við vorum bara mjög góðar í dag og sköpuðum helling af færum. Við héldum ró okkar og vorum aggressívar í pressu."
„Þróttur er mjög gott lið og ég er mjög hrifinn af því hvernig þær spila. Þær þora að spila, eru rólegar á bolta og eru erfiðar."
Athugasemdir