banner
   mán 06. júlí 2015 06:00
Björgvin Stefán Pétursson
Ólíklegt að Real Madrid selji Ramos segir Iniesta
Iniesta heldur að Real muni ekki selja þennan
Iniesta heldur að Real muni ekki selja þennan
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta miðjumaður Barcelona viðurkennir það að hann geti ekki ímyndað sér það að Real Madrid muni selja Sergio Ramos.

Samkvæmt heimildum Sky þá bauð Manchester United 28.6 milljónir í Ramos og leikmaðurinn var sagður vera spenntur fyrir vistaskiptum.

Ramos sagði hinsvegar í sjónvarpsviðtali að hann væri ekki í viðræðum við neinn.

Iniesta sem að hefur spilað með Ramos hjá spænska landsliðinu í mörg ár, er mikill aðdáandi hans sem leikmanns og heldur hann að Ramos verði áfram á Bernabeu á næsta tímabili.

„Ég hef alltaf sagt að Sergio er einn besti hafsent sem til er." sagði Iniesta við AS.

„Hann er nú þegar í frábæru liði, og til þess að vera hreinskilinn þá sé ég ekki fyrir mér að Real Madrid leyfi honum að fara."

AS segir frá því að undur aðdáandi hafi spurt hvort að Iniesta myndi sjá Ramos fyrir sér koma til Barcelona, en spænski miðjumaðurinn hló að því.

„Fyrir mér þá eru núverandi liðsfélagar mínir bestir." sagði Iniesta að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner