06.09.17 - 15:11
Magnús Már Einarsson
Ísland er með í FIFA 18 (Staðfest)

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ
Samningar hafa náðst á milli EA SPORTS™ og KSÍ um að íslenska karlalandsliðið verði með í FIFA 18 sem er einn vinsælasti tölvuleikur í heimi.
„Þetta eru góðar fréttir fyrir þá tugi þúsunda spilara sem að spila leikinn hér á landi og auðvitað hina fjölmörgu FIFA spilara um allan heim sem hafa hrifist af leik og árangri íslenska landsliðsins undanfarin misseri,\" segir í yfirlýsingu frá KSÍ.
KSÍ hafnaði tilboði frá EA Sports um að vera með í FIFA 17 og margir tölvuleikjanotendur voru mjög ósáttir við þá niðurstöðu. Nú er hins vegar ljóst að íslenska landsliðið verður með í FIFA 18.

Sena, sem gefur leikinn út á Íslandi, og EA SPORTS hafa af þessu tilefni látið útbúa sérstaka kápu utan um leikinn sem skartar íslensku landsliðstreyjunni. Þessi útgáfa leiksins verður aðeins fáanleg í verslunum á Íslandi.
Útgáfudagur FIFA 18 er 29. september næstkomandi.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, er mjög ánægður með að íslenska landsliðið verði nú í þessum vinsæla leik.
„Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu og tel þetta vera góð tíðindi fyrir alla þá sem spila leikinn hér á landi og í raun um allan heim. Mér finnst þetta jákvætt markaðslega fyrir íslenskan fótbolta, gaman fyrir okkar stuðningsmenn og einnig leikmennina sjálfa,\" sagði Guðni.